|
|
| |||||
|
| |
|
Fréttir: Myndir: Tenglar: Upplýsingar: |
Yngsti farþeginn sem siglt hefur með Eyjasiglingu til þessa skrapp út í Skáleyjar á dögunum. Sú stutta heitir Vilborg Arna Jónsdóttir og er fædd 4. maí á þessu ári. Vilborg hjálpaði auðvitað til við skipstjórina á leiðinni út í eyju.
Mynd af myndasmið vefsíðunnar Flestar myndirnar á þessari vefsíðu eru teknar af sama manninum. Sá heitir Ingibergur Vilhjálmsson og er kokkur á Barmahlíð, elliheimilinu á Reykhólum, afleysingakokkur á Karlsey, skipi Þörungaverksmiðjunar, háseti á Súlunni hjá Eyjasiglingu, skútueigandi og að lokum húsasmiður á Reykhólum. Fjölhæfur maður eins og þeir þurfa að vera í fámenninu.
Fjör á pöbbnum í Flatey Það var mikið líf og fjör á pöbbnum undir Hótel Flatey á dögunum þegar Alli trúbador tróð þar upp, eins og meðfylgjandi myndir sýna. Alli er tengdasonur Jóa úr Skáleyjum.
Alli trúbador í góðum fíling
Axel og frú
Barinn á Hótelinu var þétt setinn
Fjölskylduvænn bar
Guðlaugur og Kristján frá Svefneyjum í hrókasamræðum
Matur og sigling
Hótel Flatey
Þýskir og austurrískir fuglaskoðarar
Áætlunarferðir hefjast þetta sumarið
Brottför: Miðvikudaga, laugardaga og sunnudaga
(1/6-1/9 2007). 7 manna hópar og stærri geta farið aukaferðir utan þessa tíma,
eftir samkomulagi.
Vefsmiður á Ströndum Eyjasigling |
|
Reykhólahreppur - best varðveitta leyndarmálið! |
Vefur: SÖGUSMIÐJAN | ||